Monday, 13 August 2012

9. ágúst (fimmtudagur)


Dagurinn fór rólega af stað en eftir brunch í garðinum, lestur og sólbað var loks látið eftir Ásólfi að hjóla niður í bæ.  Byrjuðum á að stoppa við Fisherman‘s Warf sem er við ytri höfnina. Heilmikill túristastaður en þó mjög skemmtilegt umhverfi í mikilli nálægð við sjóinn. Ýmsu grúir þar saman m.a. flothús líkt og í Vancouver, mörg hver mjög glæsileg. Við vorum þó á því að nálægðin við túristana væri fullmikil og slepptum því að kaupa það sem var til sölu þarna.

Næsti áfangastaður var ferjubryggjan þar sem við keyptum okkur miða með ferjunni til Seattle þann 25. ágúst – það er því hægt að fara að telja niður dagana...

Enn var látið eftir Ásólfi sem hafði lesið að bæjarins bestu fish and chips fengjust hjá Red fish blue fish sem var við hinn enda hafnarinnar.  Þangið var því hjólað og þar beið okkar röð og það engin smá.  Við skiptumst á að standa í röðinni í einn og hálfan tíma þar til við loks fengum afgreiðslu og pöntuðum þorsk, franskar og hrásalat.  Ljómandi gott en þó óvíst hvort við leggjum þetta á okkur aftur. 

Loks lá leiðin í Kínahverfið sem er lítið og snoturt og hérlendir titla elsta kínahverfið í Kanada. Þar fengum við okkur ískaffi og svo var þrammað um stræti og torg, litið í búðir, aðrar búðir og svo fleiri búðir.  Uppskeran voru tveir litlir kaffibollar sem Fríða valdi af mikilli kostgæfni.

Bátahús. Við erum ögn veik fyrir þeim.

Búið að byggja örlítið við þennan bát.

Röðin endalausa eftir fish and chips.

Veitingastaðurinn sjálfur. Gerist varla einfaldara - einn gámur.

Loksins fengum við matinn okkar.

Slakað á með ískaffi.

Sýnishorn af bitum sem komu í sunnudagsgöngunni.

8. ágúst (miðvikudagur)


Vöknuðum snemma og lögðum í hann keyrandi heim til Mary og Gerry í Cowician Bay. Fengum kaffi og muffins hjá þeim og skoðuðum bæinn og útihúsin (og myndir af börnum og barnabörnum). Gengum svo með Mary á mt. Tzouhalem. Rosa flott útsýni af því ágæta fjalli. En svo skemmtilega vill til að það var einmitt af því fjalli sem indjánahöfðinga einum var hent fram brúnunum af þar sem hann giftist öllum konunum og við það var ekki unandi. Karl uglan hafði það fyrir sið að höggva fæturna af konum sínum við ökkla svo þær færu ekki í burtu frá honum. Sögum ber ekki saman um hvort það voru konurnar eða mennirnir í bænum sem köstuðu honum fyrir björg. Í dag eru aðrir siðir viðhafðir á þessum slóðum, lagt er á fjallið frá bílastæðum kaþólskrar indjánakirkju og stór kross á fjallstoppnum.

Við kvöddum Mary eftir gönguna og skoðuðum okkur um í þorpinu (Cowician Bay). Litið og skemmtilegt. Margar skemmtilegar gourmet búðir. M.a. bakarí sem við fórum í, keyptum okkur kaffi og smá nesti. 

Keyrðum síðan sem leið lá í Cowichian Valley sem er sannkallað gourmet hérað, vínbændur og matvælaframleiðsla af öllum toga. Mary benti okkur að skoða Kinsol Trestle sem er gömul járnbrautarbrú yfir gil sem nú er hluti af lengsta útivistarstíg á Eyjunni. Brúin er nýlega uppgerð og voru þau ágætu hjón styrktaraðilar að því verkefni.

Loks heimsóttum við einn af þessum gourmet búgörðum - Marydale. Borðuðum á „slow food“ veitingastað við búgarðinn og gengum svo um svæðið og skoðuðum okkur um. Fengum leiðsögn frá bæjarhundinum í skoðunarferðinni en hann skottaðist á undan okkur og lét okkur vita hvar og hvenær ætti að beygja.

Skemmtilegt tré rétt við toppinn á Tzouhalem.


Mary og Hrafnkell á toppi Tzouhalem.

Flott útsýni - þegar komið er upp fyrir trén.

Miðbærinn í Cowician Bay. Aðeins ein gata - en skemmtileg.

Fengum ekki að fara lengra eftir þessum vegi vegna hættu á skógareldum.

Kinsol Trestle - nýuppgerð og fín.

Hólmfríður á Kinsol Trestle - og endalaust af trjám. Undir og yfir og allt um kring.

Marydale. Fengum ljómandi góðan kvöldverð þar.

Eplapæ!


7. ágúst (þriðjudagur)

Fyrsta ganga með hinum gönguklúbbnum. Fórum og hittum Gemmu – sem er önnur kona sem HÁP setti sig í samband við í gegnum alnetið ágæta áður en við lögðum í ´ann í þeim tilgangi að finna göngufélaga. Hittum Gemmu heima hjá henni á Dallas Rd og fórum í bílinn með henni. Hún pikkaði upp 2 kellur – Carol og Pauline (Pauline minnti skemmtilega mikið á gömlu kelluna í Aðþrengdum eiginkonum). Hittum svo restina af göngufélögunum á bílastæði þar sem sameinast var í bíla. Alls vorum við 11 í hópnum. Afar skemmtilegur hópur. Við talsverðum sjónarmun yngri en aðrir. Og eins og við vissum – og var annar tilgangur með þessu hjá okkur – þá gafst okkur gott tækifæri til að æfa enskuna okkar. 

Fórum á eitt af fjölmörgum verndarsvæðum hér um slóðir eða Thetis Lake Regional Park Frekar létt ganga og við hjónakornin syntum í Upper Thetis. Svalandi og grænt. Ætlum að hitta þennan hóp aftur eftir viku. Með í ferð voru þrír karlar. Phil, sem er sálfræðingur sem er hættur störfum og tiltölulega nýfluttur hingað. Hann er skemmtilegur og þykir afskaplega líkur Dustin Hofman, bæði í útliti og háttum. Svo var það Jim. Nokkuð vel roskinn en ótrúlega röskur. Hann og kona hans sem er að íslenskum ættum heimsóttu Ísland 2007. Og svo Barry – hann talaði mikið og var alveg ágætur. 

Konurnar voru líka skemmtilegar. Man ekki öll nöfnin, ein heitir Gwen fædd í Manchester á Englandi en hefur búið hér frá því hún fór að heiman.  Hún lauk nýlega háskólagráðu í miðaldarfræðum og var ágætlega að sér í Íslendingasögum, sérílagi Egilssögu. Þetta var ca 4 tíma ganga + ferðir. 

Við tókum því svo rólega þegar heim kom. HÁP svaf í sófanum en HS las krimma úti í garði. 

Reffilegur með nýja hattinn.

Nestispása við Upper Thetis.

Nýju vinirnir okkar: Gemma, Gwen og Phil.

Órakað tré.

Fegrunarblundur.

6. ágúst (mánudagur)


Frídagur í British Colombia og verslunarmanna-mánudagur á Íslandi. Og að sjálfsögðu frídagur hjá okkur líka. Tókum aðeins til, lásum og hvíldum okkur. HÁP slappur vegna ofnæmis. Keyrðum í bæinn undir kvöld til að kaupa gönguhatt á HÁP, bol á HS og göngu-kæliflöskur.

Tilraunaeldhús um kvöldið:
Í forrétt vorum við með soðin þistilhjörtu (heil) og hrærðum saman smjör, sítrónubörk, basiliku og steinselju sem við notuðum sem dip. Skemmtilegt að borða þistilhjörtun svona. Í aðalrétt var svo fusilli pasta með ferskum aspars og parmessan. Mjög gott. Hvoru tveggja úr nýju uppskriftabókunum okkar. Namminamm.


Ljómandi fallegt þistilhjarta.

Hrafnkell að borða sitt hjarta.

Hólmfríður og fusilli með aspars og parmessan.

Friday, 10 August 2012

5. ágúst (sunnudagur)

Fyrsta gangan. Hittum Mary and Gerry Hof uppúr kl 9 og gengum með þeim á Grassy Ridge – sem er partur af Sooke Potholes Regional Park. Hittum þau á auðfundnu bílastæði og keyrðum með þeim að áfangastað. Hrafnkell hafði sett sig í samband við Mary áður en við komum hingað – fann hana og gönguklúbbinn hennar á hinum mjög svo ágæta alneti. Mary og Gerry eru hjón – hún er 55 og hann eitthvað aðeins eldri. Voru kúabændur en seldu kvótann fyrir nokkrum árum. Búa enn á bænum og ætla sér að gera um ókomna tíð. Afar skemmtileg hjón. Hún mjög mikill göngu- og útivistargarpur.  Hún er ættuð frá Póllandi og hann frá Hollandi. Þetta var n.k. könnunarleiðangur þar sem Mary ætlaði sér að finna gönguleið niður að fjallavatni, Grassy Lake, en við fundum aldrei slóðina að því. Þetta var einn heitasti dagur sumarsins – yfir 30 stiga hiti – og okkur varð ögn heitt. Mjög skemmtileg ganga þó. Skuggi hárra trjáa bjargaði okkur. Gengum talsvert í burkna-runn-lendi sem skilaði okkur allnokkrum moskítóbitum – aðallega á fótleggjum. HS hafði fundið fyrsta bitið kvöldið áður – á ökklakúlunni – sem var ekki sérlega þægilegt þegar gengið var í nýju fínu gönguskónum sem héldu vel um. Gangan tók um 4,5 tíma. Við stoppuðum svo öll og fengum okkur ís þegar niður var komið. Það var gott!

Hér má sjá kort af svæðinu sem gengið var um og já Grassy Lake sem aldrei fannst (kort).

Um kvöldið hjóluðum við í bæinn með teppi og nesti. Komum okkur vel fyrir á lóðinni fyrir framan Hotel Empress og hlustuðum á tónleika með sinfóníuhljómsveit Victoríu sem spilaði í höfninni. Þetta er árlegur viðburður hjá þeim. Mjög flott og svaka mikill mannfjöldi. Flugeldasýning í lokin. Hótel Empress ku vera víðþekkt. Og aldrei talað um það sem hótel - bara sem Empress. Og seiseijá.

Hrafnkell með Mary og Gerry Hof.
Hrafnkell og Gerry í mesta skugga sem í boði var.

Spáð og spökulerað.


Hólmfríður (t.v) og Hrafnkell (t.h.).


Hið víðfræga Empress.
 
Þinghús Bresku Kólómbíu í ljósaskiptunum.
Og svo flugeldasýningin. Takk fyrir.


4. ágúst (laugardagur)

Sáum Ísland vinna Frakkland á ÓL. Hjóluðum svo í bæinn. Afskaplega mikill hiti. Settumst á krá og spiluðum. Fórum í mjög flotta bókabúð, Munro‘s books. Keyptum 2 matreiðslubækur og HÁP gerði mjög gott risotto með restinni af kjúllanum frá kvöldinu áður.
Svona lítur hiti út.

3. ágúst (föstudagur)

Ákváðum að hafa þennan dag letidag, EN það varð nú aldeilis ekki svo. Nema kannski letidagur ala Hrafnkell Ásólfur... Það byrjaði þó vel. Borðuðum morgunmat úti í garði og lögðum svo af stað hjólandi í átt að strönd með bók og teppi (og letivon í hjarta). Hvorki bók né teppið var brúkað þennan daginn. Þess í stað hjóluðum við og hjóluðum og hjóluðum. Og gengum á eitt lítið og huggulegt fjall, borgarfjallið Mount.Doug. Af toppi þess var afar flott útsýni yfir borgina. Gengum upp í gegnum mikinn skóg en niður hefðbundna leið (sem hægt er að keyra). Og hjóluðum svo meira. Kíktum aðeins á eina strönd – en þar var skrítin lykt og ekki hægt að liggja í sól. Héldum því áfram að hjóla og hjóla. Þar til við komum á campus við háskólann. Þar fundum við vænan bar þar sem við settumst á og fengum okkur bjór og svaka gott snakk – þistilhjörtu, spínat, hvítlaukur (?) og eitthvað hvítt (sýrður rjómi, grísk jógúrt eða álíka). Namminamm! Spiluðum Ólsen Ólsen. Gerðum okkur svo kjúklingasalat um þegar heim kom um kvöldið.
Morgunmatur í garðinum - gaf fögur fyrirheit...

Hverfið okkar er þarna í mjög miklum fjaska (við skagann).

Sáum "alla leið" yfir til Bandaríkjanna. Mt Baker með hvítum toppi.

Hjónakorn á toppi Mt. Doug.

Skógur. Nóg af honum hér.

Stöndin með skrítnu lyktinni - afar huggó þó.


Þessi dádýrskálfur varð á vegi okkar - móðir hans var ekki langt undan.